Laugardaginn 4. desember, 1999 - Landsbyggðin
Altarisklæði og hökull helguð á Blönduósi
Blönduósi - Nýr hökull og altarisklæði, sem kvenfélagið Vaka á Blönduósi gaf Blönduóskirkju, voru helguð í kirkjunni í messu á fyrsta sunnudegi í aðventu.
Blönduósi - Nýr hökull og altarisklæði, sem kvenfélagið Vaka á Blönduósi gaf Blönduóskirkju, voru helguð í kirkjunni í messu á fyrsta sunnudegi í aðventu. Hökullinn og altarisklæðin gerði Hrönn Vilhelmsdóttir textílhönnuður sem í æsku sleit barnsskónum á Blönduósi.
Hökullinn er í aðventu- og föstulit upplýsti sóknarpresturinn séra Sveinbjörn R. Einarsson í messunni en það er hinn blái litur fjólunnar. Séra Ágúst Sigurðsson á Prestbakka þakkaði þessa höfðinglegu gjöf fyrir hönd prófastsdæmisins. Kvenfélagið Vaka á Blönuósi færði kirkjunni þessar gjafir í tilefni af sjötíu ára afmæli félagsins á síðastliðnu ári.
|