Myndverkin á sýningunni eru unnin í tengslum við myndskreytingu á
bókinni Hrafna-Flóka eftir norsku skáldkonuna Sylvien Vatle sem kom
út í Noregi haustið 2010 og á Íslandi vorið 2011.
Útgáfa bókarinnar er samvinnuverkefni á vegum sveitarfélagsins Sveio
á vesturströnd Noregs, norska sendiráðsins á Íslandi, útgefenda o.fl. aðila.
Náttúran, stormurinn og sagan hafa alla tíð haft sterk mótunaráhrif á Sveinbjörgu sem naut þeirra forréttinda að vera alin upp í nánum tengslum við náttúru og sagnahefð.
Verkin á sýningunni eru til sölu og verða aðgengileg á heimasíðunni www.sveinbjorg.is. |